Magga Sigga Miðlar

Facebook · Instagram · TikTok

Þú rekur fyrirtækið. Ég sé um samfélagsmiðlana.

Texti, myndir, reels og póstar fyrir íslensk smáfyrirtæki sem hafa ekki tíma, eða nennu, til að halda úti miðlunum sjálf.

Bókaðu frítt spjall Sjá hvað ég geri
Margrét brosandi við viðarvegg

Þjónusta

Allt sem þarf, frá hugmynd að pósti.

01

Texti

Færslur sem hljóma eins og þú, bara skýrari. Engin sölulumma.

02

Myndir

Ég kem og tek myndir af fólkinu, vörunni og staðnum. Alvöru, ekki myndabanki.

03

Reels

Stutt myndbönd fyrir Instagram og TikTok, þar sem athyglin er í dag.

04

Póstun

Ég skipulegg og pósta reglulega. Þú þarft ekki að muna eftir neinu.

Margrét í dökkbláum jakka

Hver er ég?

Ekki auglýsingastofa. Manneskja sem kann að segja sögu.

Ég er Margrét. Ég var sjúkraflutningamaður í 15 ár, fjallaleiðsögumaður og er rithöfundur. Ég veit hvað fær fólk til að stoppa og hlusta.

Ég nota gervigreindartól í vinnunni. Það þýðir að þú færð meira efni, hraðar, á lægra verði en hjá stofu. En það er alltaf ég sem ákveð hvað fer út.

Hvernig virkar þetta

Fjögur skref. Ekkert vesen.

  1. 1. Spjall Frítt, 20 mínútur. Ég kynnist rekstrinum og hvað þú vilt ná fram.
  2. 2. Áætlun Þú færð einfalda mánaðaráætlun: hvað, hvar og hvenær.
  3. 3. Framleiðsla Ég tek myndir, klippi reels, skrifa texta og pósta.
  4. 4. Yfirferð Í lok mánaðar förum við yfir hvað virkaði og stillum af.

Samstarf

Engir staðlaðir pakkar. Þú færð það sem þitt fyrirtæki þarf.

Bakarí á Hellu þarf ekki það sama og gistiheimili undir Eyjafjöllum. Þess vegna byrjum við á samtali. Ég hlusta, kynnist rekstrinum og set saman tillögu sem passar þér og þínu veski.

Fast mánaðarverð, enginn bindisamningur.

Það sem hægt er að velja

  • Færslur með texta og myndum
  • Reels fyrir Instagram og TikTok
  • Myndataka á staðnum
  • Facebook, Instagram og TikTok
  • Skipulag og póstun
  • Mánaðarleg yfirferð
Fáðu tillögu

Tilbúin að hætta að hafa samviskubit yfir Instagram?

Sendu mér línu og við tökum frítt spjall. Ekkert sölutal, bara hvort þetta passi þér.

magga@maggasiggamidlar.is
Margrét hallar sér upp að viðarvegg